
fimmtudagur 24.nóvember 2011
Fréttatilkynning frá ríkissáttasemjara
9. nóvember 2011
Kjarasamningar gerðir við
nánast alla launþega í landinu
Kjarasamningar vinnuveitenda og stéttarfélaga launþega
hafa nú verið gerðir fyrir nær alla launþega í landinu. Samningar á almennum
vinnumarkaði gilda jafnan til janúar 2014 með fyrirvara um endurskoðun breytist
forsendur samninganna að mati samningsaðila. Samningar ríkisins gilda yfirleitt til marsloka 2014 og samningar
sveitarfélaga til mars, júní eða septemberlok 2014.
Samtök atvinnulífsins, sem semja fyrir hönd þorra
fyrirtækja á almennum vinnumarkaði, hafa lokið öllum samningum ef frá eru
taldir örfáir samningar í flugþjónustu, við lyfjafræðinga og starfsmenn í
ferjurekstri.
Ríkið semur við stéttarfélög opinberra starfsmanna og
hefur lokið samningum við langflesta viðsemjendur sína. Allir samningar sem
falla undir stéttarfélög sem tilheyra BSRB, BHM, KÍ og ASÍ eru frágengnir. Níu samningar eru ógerðir við starfsmenn á
skipum Hafrannsóknarstofnunar, hjá Landhelgisgæslu og Þjóðleikhúss.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur lokið öllum
kjarasamningum á þess vegum en sambandið semur fyrir hönd flestra sveitarfélaga
í landinu.
Reykjavíkurborg gerir samninga við ýmsa
starfsmannahópa í þjónustu borgarinnar og er þeim öllum lokið.
Á árinu hefur 61 kjaradeilu verið vísað til
sáttameðferðar hjá ríkissáttasemjara. Öll eru þessi mál leyst að 3 frátöldum. Í
nokkrum tilfellum hafa samningar verið felldir og þeir komið til áframhaldandi
umfjöllunar hjá sáttasemjara. Á þetta t.d. við um samninga atvinnuflugmanna,
flugvirkja, flugfreyja og starfsmanna Ísal.
Samningsaðilum er skylt að senda ríkissáttasemjara
afrit af öllum kjarasamningum sem gerðir eru. Til þessa hafa tæplega 190 kjarasamningar gerðir á árinu
verið skráðir hjá embættinu.